Herdís Anna Jónasdóttir, Grímur Helgason og Semion Skigin koma fram á áskriftartónleikum Tónlistarfélags Ísafjarðar. Þau flytja verk fyrir sópran, klarinett og píanó eftir J. S. Bach, Schubert og Louis Spohr í Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísafjarðar, miðvikudagskvöldið 6. apríl klukkan 20. Miðaverð er kr. 3000, en kr. 2000 fyrir eldri borgara og öryrkja. Aðgangur ókeypis er fyrir skólafólk 20 ára og yngra. Miðasala fer fram við innganginn.

Herdís Anna er fædd og uppalin á Ísafirði, lauk B.Mus.prófi í söng frá Listaháskóla Íslands árið 2003. Hún stundaði framhaldsnám við Hanns Eisler Tónlistarháskólann í Berlín, var eitt ár í óperustúdíóinu í Zürich og svo fastráðin í fimm ár við Ríkisóperuna í Saarbrücken, Þýskalandi. Herdís Anna hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum í Þýskalandi, Íslandi og Sviss. Herdís hlaut Grímuverðlaunin sem Söngkona ársins 2019 fyrir söng sinn hlutverki Víólettu Valery í uppfærslu Íslensku óperunnar á La traviata og var tilnefnd sem Söngkona ársins í klassískum flokki til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019 og 2020.

Grímur Helgason nam klarinettuleik hjá Sigurði I. Snorrasyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík og hjá Einari Jóhannessyni í Listaháshóla Íslands þaðan sem hann útskrifaðist árið 2007. Á násmsárum sínum var Grímur jafnframt einn stofnfélaga Kammersveitarinnar Ísafoldar. Grímur nam ennfremur við Conservatorium van Amsterdam hjá Hans Colbers og lauk þaðan M.Mus prófi vorið 2011. Grímur hefur komið nokkuð víða við í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem kammermúsíkant, hljómsveitarspilari, flytjandi nýrrar tónlistar og klarinettukennari. Meðal hljómsveita og tónlistarhópa sem hann hefur leikið með undanfarin ár má nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands (hvar hann er staðgengill leiðara), Caput, Stirni ensemble, Kúbus og Kammersveit Reykjavíkur auk samstarfs við fjölbreyttan hóp tónskálda og framsækinna tónlistarmanna.

Semion Skigin píanóleikari fæddist í Leníngrad og lærði þar við tónlistarháskólann. Árið 1972, kom hann fram með Fílharmóníunni í Leníngrad og vann þremur árum síðar fyrstu verðlaun í Alþjóðlegu meðleikarakeppninni í Ríó de Janeiro. Semion er vel metinn kennari og var gestaprófessor 1978 til 1981 við Carl Maria von Weber Tónlistarháskólann í Dresden. Síðan 1990 hefur hann verið prófessor í meðleik fyrir söngvara við Tónlistarháskólann Hanns Eisler í Berlín. Einnig kennir hann reglulega masterklassa við háskóla í Þýskalandi, Hollandi, Bandaríkjunum og Rússlandi. Hann situr í dómnefnd í fjöldamörgum alþjóðlegum keppnum og hátíðum, hann er listrænn stjórnandi ýmissa hátíða og tónleikaraða. Semion Skigin er einn ástsælasti meðleikari á meðal söngvara í dag og má heyra hann víða um heim, með til dæmis Ekaterinu Semenchuk, Evelinu Dobracevu, Olaf Bär, Cheryl Studer, Robert Holl, Olgu Borodinu, og Sergei Leiferkus.
Skigin var meðal helstu kennara Herdísar er hún var við nám í Berlín, en þau hafa áður haldið saman tónleika á Ísafirði undir yfirskriftinni Blómatónar.

Efnisskrá:

J. S. Bach

Söngles og aría ,,Sich üben im lieben” (úr kantötu BWV202)

Aus Liebe wird mein Heiland sterben (úr Mattheusarpassíunni, BWV 244:58)

Wie zittern und Wanken (úr kantötu BWV 105)

Preludio C-dúr (BWV 846)

Söngles og aría: ,,Ich habe genug... Schlummert ein, ihr matten Augen" (BWV 82a / úr nótnabók Önnu Magdalenu Bach)

Aría í G-dúr (úr Goldberg-tilbrigðunum BWV 988)

Willst du dein Herz mir schenken (Aria di Giovannini úr nótnabók Önnu Magdalenu Bach)

Hlé

Louis Spohr
Sex þýsk ljóð (Op. 103)

F. Schubert
Mansöngur (Ständchen, D 957, Nr. 4)
Silungurinn
Der Hirt auf dem Felsen